Rúna Vala...hin eina sanna, enjoy...  

Gestabókin



Eldri blogg:





sendu mér póst
mánudagur, febrúar 12, 2007

Lasleiki

Já, ég er lasin. Nú spyrja kannski sumir sjálfa sig: ha!? verður Vala lasin!?!?
Já, ég er lasin og hef legið í rúminu meira eða minna síðan á föstudaginn (í dag er mánudagur). Fyrst voru það beinverkir og hiti, ég poppaði íbúfen eins og mér væri borgað fyrir það. Á öðrum degi fór hósti að gera vart við sig en beinverkirnir hurfu. Þá fannst mér ég nógu hress til að fara í partý!!! Ég var fegin að ég þurfti ekki að æpa yfir tónlistina í þessu partýi, þetta var nefnilega partý í félagi heyrnarlausra!! Svaka gaman, mafíuþema. Ég elska þemu. :) Ég var bara frekar hress, sko. Ég var vel klædd og með far þannig að ég var ekkert að stripplast neitt.
En morguninn eftir vaknaði ég með þennan svakalega hósta sem í dag hefur þróast í hálsbólgu líka. Þetta var á leiðinni, ég held EKKI að partýferðin mín hafi sent mig aftur í rúmið, takkfyriroggóðandaginn!!! Þurfti að svíkja elskuna mína litlu sem ég átti að sækja í skólann og fara með í kökuboð í DÖFF-félaginu og hún var svo spennt að sjá heim til mín. Svo þarf ég að svíkja hana aftur í dag. Ömó!! Eeeen ég er staðráðin í að vera svaka skemmtileg á morgun, jafnvel sækja hana í skólann, það væri gaman. Já, og fara í strætó og jafnvel á kaffihús :D
En fyrst þarf ég að láta mér batna, einbeita mér að því... lesa, sofa, drekka heitt, hósta, hnerra, snýta mér. Lífið er ljúft....naaaat!!!


skrifað af Runa Vala kl: 13:29

Comments: Skrifa ummæli
© Sigrún Vala